Gunnhildur Lind Photography

Gunnhildur Lind Photography Ég hjálpa fullkomlega ófullkomnum fjölskyldum + pörum að ná einlægum og eigulegum myndum af sér og sínum.

Hægt er að sjá upplýsingar um myndatökur og verð með því að smella á heimasíðuna mína hér fyrir neðan 📸👇

03/06/2026

Þá er ég komin í fæðingarorlof og byrjuð að læra á nýtt hlutverk 🧸🍼🩵🥰☀️

15/05/2026

Fjölskyldu myndavél 📸🧑‍🧑‍🧒‍🧒✔️

Í staðinn fyrir að eina myndavélin á heimilinu væri fancy cameran mín (Canon R6) sem er mitt vinnutól, þá erum við núna með muuun minni, meðfærilegri og auðvelt að grípa í vél fyrir bæði mig OG Baldur þar sem markmiðið er að mynda hversdagsleikann og heimilislífið (þegar tvíbbarnir loksins mæta á svæðið) 💫🏡

Þetta vídjó er unnið í samstarfi við .island og ég fékk góða ráðgjöf um hvaða vél hentaði best fyrir okkur. Þetta er Canon PowerShot V1 — Ég er mjög forvitin og spennt að prófa hana næstu vikurnar og líka að sjá Baldur minn spreyta sig á henni 👏

Og hvað er dauður köttur? Það er þetta flöffí dót sem maður setur yfir mækinn til að láta hljóð hljóma ENN betur 😸

Annars, góða helgi öll 🫶

Til hamingju allar mæður með daginn ykkar í gær 🤍Það er erfitt að setja í orð hversu magnaðar mæður eru. Þið eruð einfal...
11/05/2026

Til hamingju allar mæður með daginn ykkar í gær 🤍

Það er erfitt að setja í orð hversu magnaðar mæður eru. Þið eruð einfaldlega grjótharðastar og bestar og á hverjum degi er ég orðlaus yfir því hvað t.d. líkaminn okkar er fær um (svona verandi sjálf á lokametrum meðgöngu), það er ótrúlegt hvað hann getur gert.

05/05/2026

Festing á hálsmeni, sími í vasa eða tyggjó (eða meira tyggjó í ruslið), allt hlutir sem ég er svo þakklát að einhver man með mér í myndatökum 🙏

Er eitthvað sem ég er að gleyma?

29/04/2026

Það kostar ekki krónu að rölta Hólmaborgina á Eskifirði ✨👏🩵

Gleðilegt sumar frá Eskifirði ☀️🌱Þessa mynd tók hann Baldur minn síðasta sunnudag af Mjóeyrinni þegar við röltuðum um bæ...
23/04/2026

Gleðilegt sumar frá Eskifirði ☀️🌱

Þessa mynd tók hann Baldur minn síðasta sunnudag af Mjóeyrinni þegar við röltuðum um bæinn í morgunblíðunni, hann á bol og ég í mjööög þunnri peysu, svo gott var veðrið. Logn, sól og hlýja, alveg eins og í dag á sumardaginn fyrsta 🧡

19/04/2026

Djúsí grænn litur og hlutlaust myndefni erða í drapplitaða herbergið okkar Baldurs 🌿

Ég lét loksins verða að því að prufa að prenta út ljósmynd hjá Héraðsprenti á Egilsstöðum. Súper glöð með útkomuna á prentinu (alveg vigt í þessu). Myndin er í stærðinni 40cm*60cm 🎞️

Rammann keypti ég líka í Héraðsprent, í stærð 50cm*70cm 🖼️

Svo fór ég til yndislegu Sigrúnar í Rammalausnir Sigrúnar í Fellabæ og fékk karton hjá henni til að setja punktinn yfir i-ið 👏

16/04/2026

Gamla góða myndaalbúmið er með comeback! Heyrðir það fyrst hér 🙋🏼‍♀️

Djók.

En samt ekki djók. Nú þegar maður er að fara inn í nýjan kafla í lífinu (tveir guttar væntanlegir í næsta mánuði hér á bæ), þá fer maður að hugsa um allskonar hluti eins og t.d. gömlu góðu myndaalbúmin sem er svo gaman að skoða.

Hver kannast ekki við að vera að taka til og „detta“ svo inn í gamalt albúm og allt í einu er hálftími floginn frá?

Fyrsta fjölskyldualbúmið er allavega komið í hús og mega þau verða mörg og full af allskonar myndum úr ævintýrum hversdagsins 💫

Address

Borgarnes
310

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Gunnhildur Lind Photography posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Gunnhildur Lind Photography:

Shortcuts

Share

Category