10/04/2026
Í gærkvöld myndaði ég æfingu á söngleiknum Draumur í dós (eða Anything Goes) hjá söngleikjadeild Söngskóla Sigurðar Demetz – hvorki meira né minna en tíunda árið sem ég geri þetta. Þetta er alltaf virkilega gaman, og alveg magnað að sjá þessi hæfileikabúnt stíga á svið þar sem þau bjóða okkur hinum að hrífast með. Sýningin í ár er engin undantekning.
Ég hef stundum líkt því að taka myndir af söngleikjum við að mynda körfuboltaleik. Yfirleitt hef ég ekki mætt á æfingu áður, misjafnt hve vel ég kannast við verkið, og því má ég hafa mig allan við til að ná því sem þarf að mynda. Oftast tekst það, en stöku sinnum missi ég af augnabliki sem ég hefði viljað ná, hvort sem ég er rangt staðsettur, veit ekki af einhverju óvæntu sem er að fara að gerast, eða er með ranga myndavél uppi (já, ég er alltaf með tvær vélar – aðra í höndunum og hina hangandi um hálsinn) til að þurfa ekki að eyða tíma í að skipta um linsu.
En hvað um það, frumsýningin verður 16. apríl næstkomandi, sýnt á litla sviði Borgarleikhússins, og miðar eru á tix.is.
Mæli 100% með!