16/02/2026
Þegar daginn fer að lengja og huga þarf að skipulagi sumarsins leitar minn hugur á Hornstrandir.
Þá er gott að kíkja á myndir og rifja upp minningar frá fyrri ferðum.
Ég sá þennan yrðling síðasta sumar án þess að hann yrði mín var, ég lagðist niður, lét lítið fyrir mér fara og fylgdist með. Allt í einu lítur hann upp kemur auga á mig og ákveður að labba til mín. Ég á það til að spjalla við sjálfa mig (stundum í huganum) í aðstæðum sem þessum. Ég segi, nei nei litli vinur ekki koma, en hann hlustar ekki. Hann kemur nær og nær en ég ligg kyrr, allt í einu stoppar hann snýr sér við og röltir til baka. Ég lá kyrr, skreið síðan til baka og lét mig hverfa.
Fleiri myndir má sjá á síðunni minni: https://svana.photography