Daðey heiti ég, móðir, maki, kennari og áhugaljósmyndari. Ég hef haft áhuga á ljósmyndun frá því ég var krakki og man vel eftir mér leikandi með gamlar myndavélar sem foreldrar mínir áttu - stöðugt að ramma inn augnablikin með ónýtum myndavélum. Þar sem ég bjó út á landi þá voru takmörkuð tækifæri til þess að læra eitthvað af viti og alls ekki hlaupið að því að koma filmum í framköllun, sem að hluta til skýrir notkunarleysið á fyrstu alvöru myndavélinni minni, Olympus OM-101 filmuvél sem ég fékk í fermingargjöf frá systkinum mömmu.
Það var í raun ekki fyrr tuttugu árum seinna, 2016, að ég fer að garfa í ljósmyndun að einhverri alvöru. Ég keypti mér Canon EOS 70D, fór á grunnnámskeið og lærði að taka myndir Manual. Ég sinnti áhugamálinu þó ekki mikið, aðallega til að taka tækifærismyndir af börnunum. Jólin 2019 fæ ég svo Canon 5DmIII í jólagjöf frá Kára mínum og var því “tilneydd” til að endurnýja linsurnar mínar. Það greip mig eitthvað græjuæði og ég varð auðvitað að réttlæta öll þessi kaup með því að nota búnaðinn og úr varð að ég fór nú að gera mér sérstakar ferðir til að sinna áhugamálinu og gefa því meira pláss í hinu daglega amstri. Það má því segja að ég hafi verið virk sem áhugaljósmyndari síðan þá. Í dag nota ég Canon EOS R6 myndavél. Draumurinn er þó alltaf að læra meira og jafnvel koma af stað litlu stúdíói fyrir barnamyndatökur og kafa dýpra í einstaklings- og hópmyndatökur bæði innandyra og utan. Það er ekki af ástæðulausu sem ég stefni á sérhæfingu í barnamyndatökum, en allt frá 2008 hef ég starfað í leik- og grunnskólum sem iðjuþjálfi, leikskólakennari, sérkennari og grunnskólakennari á yngsta stigi. Eins og er hef ég ekki formlegt nám í ljósmyndun, en ég hef þó lokið ýmsum netnámskeiðum frá The School of Photography. Instagram https://www.instagram.com/dasmyndir
https://DASMyndir.com