Sigmenn ehf.

Sigmenn ehf. Í sumum tilfellum er sú þjónusta sem Sigmenn bjóða upp á eina raunhæfa lausnin sökum þrengsla, hæðar eða kostnaðar við aðrar lausnir.

Sigmenn hafa á sínum snærum fjölbreyttan hóp faglærðra iðnaðarmanna sem eru vanir línuvinnu. Það gerir fyrirtækinu kleift að sníða teymi að hverju verkefni fyrir sig. Sigmenn bjóða einnig upp á ráðgjöf sem nýst getur byggingaverktökum, verkfræðistofum, arkitektum og opinberum stofnunum. Gott getur verið að kalla ráðgjafa snemma að borðinu til að skipuleggja viðhald og eftirlit úr siglínum. Ef hugað er að þessum þætti snemma í ferlinu getur það sparað tíma og fjármuni til lengri tíma og oft þarf ekki nema lágmarks fjárfestingu til að sinna viðamiklum verkefnum. Kostir línuvinnu:

Fyrir utan að vera oft ódýrari valmöguleiki og stundum eina raunhæfa lausnin hefur notkun siglína við lausn verkefna þá kosti umfram vinnupalla, lyftur og krana að hafa lágmarks áhrif á umhverfið. Hávaðamengun vegna vinnuvéla er engin, áhrif á venjulegt aðgengi að byggingunni eru engin, engin óþægindi fyrir gangandi vegfarendur eða bílaumferð, engin loftmengun og engin sjónmengun af vinnupöllum og stórum tækjum, bara vinnukallar í spottum.

Address

Akralind 7
Kópavogur

Telephone

778112

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Sigmenn ehf. posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Sigmenn ehf.:

Shortcuts

Share