Ljósmyndaver Hörpu Hrundar ehf var stofnað í febrúar 2005 af Hörpu Hrund Bjarnadóttur. Ég tek að sér allskyns myndatökur en sérstaða mín er portretmyndatökur og legg ég mikla áherslu á fagleg vinnubrögð og fallegan frágang.
Ég á þrjú börn fædd ‘01,’04 og ’11 og hef gott lag á börnum og unglingum. Alveg eins og svo margar litlar stelpur þrá, þá ætlaði ég að verða dýralæknir. Seinna vildi ég verða myndlistamaður og sótti mörg námskeið í tengslum við það. Loks kom áhugi á ljósmyndun og sálfræði. Að vinna við að taka myndir af fólki og dýrum þarf svolítið af þessu öllu, slatta af sálfræði, áhuga á dýrum, heilmikla list og auðvitað mikið af kunnáttu á ljósmyndun.
Ég lærði ljósmyndun í Lundi, Svíþjóð og síðar við Iðnskólann í Reykjavík. Á námstíma lærði ég verklegt nám hjá Barböru Birgis ljósmyndara í Ljósmyndaveri Skugganum og lauk sveinsprófi í filmu og stafrænni ljósmyndun haustið 2004. Fyrirtækið er í 40 fm húsnæði í Borg, Reykjavegi 88, 270 Mosfellsbæ. Það er mjög gott aðgengi að Ljósmyndaverinu og alltaf bílastæði beint fyrir utan. Ljósmynd er ein besta varðveisla minninga og er verðmæti hennar ómetanleg