Mirror Rose

Mirror Rose I am a Reykjavik based photographer with 15+ years of experience working in Iceland and around the w

✨ Kæru vinir, fjölskylda og viðskiptavinir ✨Hjartans þakkir fyrir allt traustið, stuðninginn og dýrmætu stundirnar á ári...
31/12/2025

✨ Kæru vinir, fjölskylda og viðskiptavinir ✨
Hjartans þakkir fyrir allt traustið, stuðninginn og dýrmætu stundirnar á árinu sem er að líða 🤍
Árið sem tekur við ber orku hestsins, frelsi, styrk og hugrekki til að fylgja hjartanu.
Megið þið finna gleðina í núinu og kraft til að elta drauma ykkar á nýju ári ✨
Hlakka til að skapa áfram fallegar minningar með ykkur.
Gleðilegt nýtt ár!
Silla Páls ljósmyndari | Mirror Rose 🌹📷
✨ Dear friends, family & clients ✨
Heartfelt thanks for all the trust, support, and precious moments shared throughout the past year 🤍
The year ahead carries the spirit of the Horse — freedom, strength, and the courage to follow your heart.
May you find joy in the present moment and the strength to pursue your dreams in the year to come ✨
Looking forward to creating more beautiful memories together.
Happy New Year!
Silla Páls | Photographer
Mirror Rose 🌹📷

🎄 Jólamynd án bókunar – beint af götunniStundum skapast skyndilega rými fyrir það sem skiptir máli ✨Ég ákvað að hafa opi...
12/12/2025

🎄 Jólamynd án bókunar – beint af götunniStundum skapast skyndilega rými fyrir það sem skiptir máli ✨Ég ákvað að hafa opið stúdíó með stuttum fyrirvara og bjóða upp á einfaldar, hlýjar jólamyndir án bókunar, milli kl.11 og 15 á morgun, laugardag 13.des.Fyrir þá sem vilja grípa augnablikið, komið við og fáið eina fallega jólamynd, tilvalda fyrir gjafir og jólakort.
Verð 15.900, mynd send í góðum gæðum.
Mirror Rose Laugavegi 65
Kær kveðja Silla Pálsdóttir

Svarturföstudagur - tilboð, fyrir þá sem ekki komast í þetta stuð um helgina í Stykkishólmi eru gjafabréf á þessu tilboð...
26/11/2025

Svarturföstudagur - tilboð, fyrir þá sem ekki komast í þetta stuð um helgina í Stykkishólmi eru gjafabréf á þessu tilboðsverði fram til 1.des hjá Sillu Silla Pálsdóttir Laugavegi 65.
Gjöf sem gleður og varðveitir ómetanlegar minningar 📸✨

Húsfreyjan tímarit og Dora Gudrun Gudmundsdottir, það er eitthvað sem að þú ættir ekki að láta framhjá þér fara... Það e...
24/09/2025

Húsfreyjan tímarit og Dora Gudrun Gudmundsdottir, það er eitthvað sem að þú ættir ekki að láta framhjá þér fara... Það eru útgefin 4 blöð á ári og áskriftin kosta lítið meira einn blómvöndur, frábær gjöf til þeirra sem eiga flest og hafa gaman af t.d. reynslusögum og góðum uppskriftum. Matarþáttur sem Albert Eiríksson stýrir og hannyrðir eftir Kristínu Örnólfs. Mæli 100% með 🥰

Haustblað Húsfreyjunnar er komið út og ætti nú að vera að detta inn um lúgurnar hjá áskrifendum.
Að venju er blaðið stútfullt af góðu lesefni.
Aðalviðtalið að þessu sinni er við Dóru Guðrúnu Guðmundsdóttur, sviðsstjóra hjá landlæknisembættinu og doktor í sálfræði, en hún hefur sérhæft sig í hamingjurannsóknum. Dóra Guðrún ræðir meðal annars um veru sína í klaustri í Suður-Frakklandi, mikilvægi félagslegra tengsla, lýðheilsuáskoranir unga fólksins og hamingjurannsóknir.
Bjargey Anna Guðbrandsdóttir ræðir við Húsfreyjuna um fyrirtækið sitt Píkusaum og sína sýn á femíníska handverksbyltingu.
Drífa Snædal talskona Stígamóta settist niður með ritstjóra og sagði frá starfi Stígamóta í tilefni 35 ára afmælis samtakanna, ásamt því að ræða um eilífa baráttuna gegn kynbundnu ofbeldi.
Að þessu sinni eru tvær smásögur í blaðinu. Síðbúinn gestur eftir Sigríði Helgu Sverrisdóttur og íslenskur dagur á Kanarí eftir Elínu Konu Eddudóttur.
Albert Eiríksson skellti sér ásamt Sillu ljósmyndara í Söngskólann í Reykjavík. Hluti af kennurum skólans útbjó girnilega rétti fyrir Húsfreyjuna, sem finna má uppskriftir að í Matarþættinum.
Frumkvöðlarnir, Marta Schluneger og Þórey Rúnarsdóttir, segja frá fyrirtækinu sínu FLÍK en þær hafa hannað smáforrit fyrir prjónasamfélagið.
Í blaðinu er umfjöllun um vitundarvakningu Kvenfélagasambands Íslands og kvenfélaganna gegn einsemd og einmanaleika. En Vika einmanaleikans fer fram dagana 3. – 10. október. Allir sem vettlingi geta valdið eru hvattir til að taka þátt.
Kristín Örnólfsdóttir sem sér um Hannyrðahornið gefur uppskriftir að prjónuðum léttum treflum og litaglöðum barnavettlingum. Kristín er líka með útsaum þar sem hún gefur lesendum hina klassísku setningu Heima er best í nýrri útfærslu.
Bryndís Fjóla Pétursdóttir segir frá lífi sínu í fróðlegu viðtali, en Bryndís lýsir sjálfri sér sem „fornkvendi, frumbyggju og völvu“. Hún ræðir meðal annars um Huldustíginn í Lystigarðinum á Akureyri, mótvægiskubb sem hún hefur hannað og tilraunir sínar með tilfinningar í vatni.
Krossgátan er svo að sjálfsögðu á sínum stað í blaðinu ásamt ýmsu öðru áhugaverðu efni.
Njótið lestursins.

Skráðu þig í áskrift hér: https://kvenfelag.is/husfreyjan/gerast-askrifandi

📸 Mirror Rose

🥗 Albert eldar

🧶 Kristín Örnólfsdóttir

Svo gaman að mynda 🍀📸🩷💚💛💜🩵❤️
19/08/2025

Svo gaman að mynda 🍀📸🩷💚💛💜🩵❤️

15/08/2025
Fjölskyldumyndataka 🍀
06/08/2025

Fjölskyldumyndataka 🍀

Address

Laugavegur 65
Reykjavík
101

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Mirror Rose posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share

Category