21/08/2026
Ókei skemmtileg saga!
Þegar ég er að tala við Ólöfu og Davíð á brúðkaupsfundinum okkar fyrir brúðkaupsdaginn spyr ég hvort það sé í lagi ef ég fæ með mér bts upptöku í myndatökunni (eins og ég geri oft)
Síðan kemur að deginum, fallegur sumardagur á lengsta degi ársins, ég byrjaði að taka brúðguma myndir af Davíð, vinum hans og foreldrum. Eftir að ég kveð Davíð þá tek ég á móti Ólöfu í grasagarðinum (vorum að passa að þau sæjust ekki fyrir athöfn 🤫😉).
Við finnum flottann stað fyrir einstaklings myndir og ég sé í hornauganu mínu frænda Ólafar sem hafði mætt með sína eigin myndavél (hugsaði vá hahaha fyndinn svona frændi með myndavélina týpa), hann er að smella af til hliðar og ekki fyrir mér. Ólöf spyr mig síðan nokkrum mínútum síðar hvað vinur minn heitir og ég horfi hissa hans og síðann hann, þá rennur upp fyrir mér að hvorki ég né Ólöf þekkja þennan mann 😂😂😂 sem betur fer var þetta bara stemmning, hann var algjör meistari sem kynnti sig með nafni og Ólöf græddi bara fleiri myndir af sér þennan dag.